Kjarasamningur við sveitarfélögin undirritaður
Kæri félagi
Stéttarfélag lögfræðinga hefur skrifað undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kosning um samninginn stendur yfir og lýkur henni kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 23. desember nk.
Kynningarfundur vegna nýs samning fer fram á morgun föstudaginn 20. desember klukkan 10:00. Nálgast má hlekk fundinn hér - Kynningarfundur
Áhugasamir geta sett sig í samband við félagið í síma 595 5143 eða með tölvupósti í tölvupóstfangið: sl@stettarfelaglogfraedinga.is.
Nánar um aðdraganda samnings og helstu atriði hans
Félög háskólamenntaðra hafa haft verulegar áhyggjur af kjaraþróun háskólamenntaðra undanfarinn ár og þeirri aðferðarfræði sem einkennt hefur samningsgerð hins opinbera. Mikill samheldni og samstaða var á meðal háskólafélaga sem hafa lagt mikið í sölurnar til þess að hafa áhrif á kjarasamninga háskólamenntaðra hjá hinu opinbera en án árangurs. Á síðustu dögum hafa stéttarfélög verið að undirritað samninga við samband sveitarfélaga. Staðan var orðin mjög þröng og ljóst að ekki yrði lengra komist án aðgerða. Nýundirritaður samningur er nú lagður í dóm félaga í SL.
Samningurinn tekur mið af þeim samningum sem gerðir voru á almennum markaði á vordögum og þeim samningum sem fylgdu í kjölfarið. Í forgrunni þeirra var áhersla á hófstilltar hækkanir með það að marki að gera verðmyndandi aðilum kleift að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum og skapa aðstæður fyrir stýrivaxtalækkanir.
Helstu atriði samnings eru eftirfarandi:
- Launahækkanir
1. apríl 2024 Að lágmarki 3,25% hækkun
1. apríl 2025 Að lágmarki 3,5% hækkun
1. apríl 2026 Að lágmarki 3,5% hækkun
1. apríl 2027 Að lágmarki 3,5% hækkun
- Eftir atvikum geta hækkanir einstaklinga á samningstímanum verið hærri en sem nemur lágmarkshækkunum. Hver og einn þarf að meta áhrif samnings á eigin kjör.
- C tafla verður lögð niður og aðilum varpað í starfsmat. Getur það haft áhrif á laun einstaklinga.
- Afturvirkt gildistökuákvæði þýðir að launahækkanir gilda frá 1. apríl 2024
- Sérstakt viðbótarmat vegna mastersmenntunar 4%.
- Launatöfluauki: Hækkanir gætu orðið meiri ef laun sérfræðinga á almennum markaði hækka verulega að meðaltali umfram laun sérfræðinga á opinberum vinnumarkaði að meðaltali
- Hækkun orlofsuppbótar um 2.000 kr. ári og persónuuppbótar um 4.000 kr. á ári.
- Varanleg breyting á vinnuviku og greinum tengdum vinnutíma, vaktavinnu og vaktaálagi. Vinnuvika verður eftirleiðis kjarasamningsbundin við 36 stundir. Félagsfólk er eindregið hvatt til að kynna sér meðfylgjandi samning og breytingar á vinnufyrirkomulagi vegna breytts vinnutíma svo sem matar og kaffitíma. Á það einkum við um þá aðila sem vinna á vöktum eða bakvöktum eru
Virðingarfyllst
Samninganefnd SL