Launahækkanir
Hér má sjá launhækkanir yfir eldri tímabil og auk þess hvenær næstu kjarasamningsbundnu launahækkanir koma til.
Næstu launahækkanir
Laun hækka frá og með 1. apríl 2023 skv. útfærslu í þessari launatöflu.
Laun hækka frá og með 1. apríl 2023 skv. útfærslu í þessari launatöflu.
Laun hækka frá og með 1. apríl 2023 skv. útfærslu í þessari launatöflu.
Kjarasamningur félagsins við SA er ótímabundinn réttindasamningur sem þýðir að í honum eru ekki. fastir taxtar eða fastar launahækkanir. Það þýðir samt sem áður ekki að laun fólks á almenna markaðinum eigi ekki að hækka. Eftirfarandi kemur fram í samningnum.
Laun og önnur starfskjör háskólamanna eru ákvörðuð í ráðningarsamningi sem gerður er milli vinnuveitanda og starfsmanns og er gert ráð fyrir að starfsmaður geti árlega óskað eftir viðtali við yfirmann um breytingar á starfskjörum. Æskilegt er að vinnuveitandi hafi frumkvæði að viðtölum við alla starfsmenn sem undir þennan kjarasamning falla, enda hafa starfsmenn væntingar um árlegt viðtal þar sem rædd er frammistaða, starfsumhverfi og þróun launa. Í viðtali um hugsanlegar breytingar á starfskjörum geta vinnuveitandi og starfsmaður m.a. haft til hliðsjónar launabreytingar í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og almenna launaþróun háskólamanna, stöðu fyrirtækis og hvernig árangur og frammistaða starfsmanns í starfi hefur áhrif á hans persónubundnu launaþróun. Í því sambandi getur formlegt mat á árangri og frammistöðu verið góður grundvöllur að málefnalegri niðurstöðu.
Eldri launahækkanir
- 1,65% til útfærslu menntunarákvæða frá og með 1. júní 2016.
- Eingreiðsla 1. júní 2017 - 63.000 kr.
- 1. júní 2018 hækka laun um 2%
- 1. febrúar 2019 sérstök eingreiðsla, 70.000 kr. greiðist hverjum starfsmanni miðað við fullt starf og sem er við störf í desember 2018 og er enn í starfi í janúar 2019. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall í desember.
- Eingreiðsla 1. ágúst 2019 - 105.000.
- 1. apríl 2019: Laun hækka um 17.000
- 1. apríl 2020: Laun hækka um 18.000
- 1. janúar 2021: Laun hækka um 15.750
- 1. janúar 2022: Laun hækka um 17.250
- 1. maí 2022: Hagvaxtarauki skv. lífkjarasamningunum. Laun ríkisstarfsmanna hækka um 10.500 krónum á mánuði og föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu sem nemur 7.875 kr.
- 20. febrúar 2017 - Félög utan starfsmats kjósa á milli leiðar A og leiðar B.
- Ný launatafla 1. júní 2017 fyrir félög í starfsmati og 3% hækkun launatöflu fyrir félög utan starfsmats.
- Launatöflu hækkun um 3% 1. júní 2018 fyrir félög í starfsmati.
- Eingreiðsla 1. febrúar 2019 fyrir félög í starfsmati - 58.000 kr.
- Eingreiðsla 1. ágúst 2019 - 105.000.
- 1. apríl 2020: Laun hækka um 24.000 kr.
- 1. janúar 2021: Laun hækka um 24.000 kr.
- 1. janúar 2022 : Laun hækka um 25.000 kr.
- 1. apríl 2022: Hagvaxtarauki skv. lífkjarasamningunum. Launatöflur sveitarfélaganna hækka sem nemur 10.500 krónum á mánuði
- Launatöfluhækkun um 3% þann 1. júní 2017.
- Launatöfluhækkun um 3,4% frá 1. júní 2018
- Eingreiðsla 1. maí 2019 - kr. 58.000.
- Eingreiðsla 1. ágúst 2019 - 100.000.
- Eingreiðsla 1. nóvember 2019 - 80.000.
- 1. Janúar 2020: Laun hækka um 17.000 kr.
- Eingreiðsla 1. ágúst 2020 - 35.580.
- 1. Janúar 2021: Laun hækka um 24. 000 kr.
- 1. janúar 2022 Laun hækka um 25.00 kr.
- 1. apríl 2022: Hagvaxtarauki skv. lífkjarasamningunum. Launatöflur sveitarfélaganna hækka sem nemur 10.500 krónum á mánuði
- 1. maí 2017: Laun hækka almennt um 4,5%.
- 1. maí 2018: Laun hækka almennt um 3%.
- 1. maí 2019: Laun hækka í samræmi við lífskjarasamning SA á almenna markaðinum ef vísað er í þann samning í ráðningarsamningi launþega.
- 1. maí 2020: Laun hækka í samræmi við lífskjarasamning SA á almenna markaðinum ef vísað er í þann samning í ráðningarsamningi launþega.
- 1. maí 2021: Laun hækka í samræmi við lífskjarasamning SA á almenna markaðinum ef vísað er í þann samning í ráðningarsamningi launþega.
- 1. maí 2022: Laun hækka í samræmi við lífskjarasamning SA á almenna markaðinum ef vísað er í þann samning í ráðningarsamningi launþega.