Sáttamiðlun í daglegu lífi
Miðvikudaginn 6. september kl. 11:00-12:00 í streymi á Teams
Elmar Hallgríms Hallgrímsson er lögfræðingur sem hefur kennt samningatækni um árabil, m.a. við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er félagsfólki að kostnaðarlausu, hann verður tekinn upp og gerður aðgengilegur í viku í kjölfarið á Mínum síðum BHM.
- Sáttamiðlun er aðferðafræði sem nýtur sífellt meiri vinsælda enda nýtist hún við úrlausn ágreiningsmála í viðskiptum og innan fyrirtækja en jafnframt í daglegu lífi.
- Farið verður yfir grunnatriði sáttamiðlunar og hvað aðferðarfræðin gengur út á.
- Leitast verður við að gera yfirferðina hagnýta svo hún nýtist þátttakendum í störfum sínum sem og í einkalífi.